Segja Önnu Kolbrúnu hafa misnotað starfsheitið þroskaþjálfi

Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, ásamt Sigmundi Davíði Gunnlaugssyni á …
Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, ásamt Sigmundi Davíði Gunnlaugssyni á þingflokksfundi Miðflokksins í dag. mbl.is/​Hari

Þroskaþjálfarafélag Íslands hefur fengið staðfestingu frá embætti landlæknis um að þingmaðurinn Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, hafi hvorki hlotið menntun sem þroskaþjálfi né fengið starfsleyfi frá embættinu. Í æviágripi hennar á vef Alþingis stóð um tíma að hún væri þroskaþjálfi en því hefur nú verið breytt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þroskaþjálfarafélaginu.

Anna Kolbrún er einn af sex þingmönnum sem viðhöfðu gróft orðlag um samþing­menn sína og aðra á bar í miðborg Reykja­vík á dög­un­um. Í tilkynningu frá Þroskaþjálfarafélaginu segir að í ljósi umræðna síðustu daga telji félagið rétt að senda frá sér tilkynningu þar sem þetta er áréttað.

„Starfsheitið þroskaþjálfi er lögverndað. Samkvæmt íslenskum lögum mega þeir einir nota þetta starfsheiti sem hlotið hafa til þess menntun og fengið starfsleyfi frá Landlæknisembættinu. Þroskaþjálfanám er fjögurra ára háskólanám og starfa þroskaþjálfar sem heilbrigðisstarfsmenn á öllum sviðum mannlífsins með það að leiðarljósi að styðja og efla samfélagslega þátttöku fatlaðs fólks og gæta hagsmuna þess. Mannréttindi og mannréttindabarátta er kjölfestan í störfum þeirra sem og fjölbreytilegar leiðir við að aðstoða og efla sjálfstætt líf fatlaðs fólks í samfélagi fyrir alla.“

Þá harmar Þroskaþjálfafélagið að starfsheitið þroskaþjálfi hafi verið misnotað með þessum hætti „enda þótt starfsheitið sé ekki lengur að finna í æviágripi þingmannsins.“

Félagið hefur tilkynnt brotið til landlæknisembættisins sem er eftirlitsaðili samkvæmt lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Í lögunum segir að að þeim sem ekki hefur gilt leyfi landlæknis sé óheimilt að nota löggilt starfsheiti eða starfa sem heilbrigðisstarfsmaður.

Brot gegn ákvæðum laga um heilbrigðisstarfsmenn varða sektum eða fangelsi allt að þremur árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert