„Ég skora á Alþingi að ræða þennan samning sem og aðra sem á eftir munu koma. Ef satt reynist að í honum felist framsal fullveldis undir alþjóðalög eða hefting á grunngildum vestræns samfélags hljótum við að hafna undirritun slíkra samninga.“
Þetta sagði Jón Þór Þorvaldsson, varaþingmaður Miðflokksins, á Alþingi í dag í umræðum um fólksflutninga sem nefnist „Global Compact for Safe Orderly and Regular Migration“. Fullyrti Jón Þór að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar myndi setja spurningarmerki við samninginn ef fólki stæði til boða að taka afstöðu til hans. Afleiðing hans yrði sú að landamæri Íslands yrðu opnuð fyrir nánast öllum íbúum jarðar sem kysu að flytja til landsins.
„Þessi samningur rammar inn þá skoðun Sameinuðu þjóðanna að æskilegt sé að fólksflutningar í heiminum séu gerðir aðgengilegir fyrir þá jarðarbúa sem þess æskja,“ sagði Jón Þór enn fremur. Fljótt á litið væri um mannúðarmál að ræða en vel væri ef svo væri eingöngu. Fulltrúar þjóða sem hefðu kynnt sér samninginn segðu hann aðför að hinum frjálsa vestræna heimi þar sem í honum fælist að setja þyrfti lög um innihald hans. Þar á meðal að tjáning gegn innihaldi hans flokkaðist sem hatursorðræða og loka mætti fjölmiðlum sem gerist sekir um að taka þátt í slíkri umræðu.
„Með öðrum orðum skal hér gengið gegn grundvallarmannréttindum, stjórnarskrá lýðveldisins og vegið er að grunninum, að frelsi einstaklingsins og vestrænu samfélagi. Samningurinn hefur ekki fengið neina umfjöllun þessi tvö ár að séð verður á Alþingi, hjá stjórnvöldum eða í fjölmiðlum. Því er viðbúið að utanríkisráðherra landsins eða staðgengill hans skuldbindi okkur 10. eða 11. desember næstkomandi, eftir rúma viku, án þess að nokkur umræða hafi farið fram um samninginn hérlendis.“
Vitað væri að nokkur lönd ætluðu ekki að staðfesta samninginn. „Formælendur þessa samnings munu halda því fram að hann sé ekki lagalega bindandi, og það er kannski rétt í þröngum skilningi, en enginn getur mælt því mót að samningurinn er pólitískt bindandi og verður skeinuhættur löndum við lagalega túlkun ýmiss konar. Það er leitt til þess að hugsa að nú þegar við fögnum 100 ára afmæli fullveldisins skuli þingheimur og fjölmiðlar ekki sinna meira um fullveldi Íslands.“