Rúm vika er síðan íslenskt samfélag fór nánast á hliðina vegna barfarar sex þingmanna á Klaustur síðla í nóvember sem náðist á upptöku.
Á þeim níu dögum sem liðnir eru frá því að fyrstu fréttir um Klaustursmálið svokallaða birtust hafa sjaldan eins mörg niðrandi ummæli fallið á jafn stuttum tíma. Tveir þingmenn hafa verið reknir úr þingflokki, tveir eru farnir í leyfi en tveir sitja sem fastast. En hvernig hefur málið þróast frá því það kom fyrst fram til dagsins í dag? Hér verður farið yfir það helsta sem drifið hefur á daga þeirra sem tengjast Klaustursmálinu, með einum eða öðrum hætti, síðustu daga.
Miðvikudagskvöldið 28. nóvember birtu Stundin og DV fréttir sem unnar eru upp úr hljóðupptöku af samtali fjögurra þingmannanna Miðflokksins; Sigmundar Davíðs Guðlaugssonar, Gunnars Braga Sveinssonar, Bergþórs Ólasonar og Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, og tveggja þingmanna Flokks fólksins; Karls Gauta Hjaltasonar og Ólafs Ísleifssonar. Sigmundur Davíð brást fyrstur við og sagði að um hleranir væri að ræða.
Daginn eftir, fimmtudaginn 29. nóvember, biðjast þingmennirnir allir afsökunar á ummælum sínum, hver með sínum hætti. Konurnar sem talað er um á upptökunni eru nafngreindar, hver af annarri og samfélagið bregst við og margir virðast sammála um að ummæli þingmannanna sýni skammarleg viðhorf til kvenna. Konur á Alþingi hittust og ræddu ummælin. Um kvöldið var árleg þingmannaveisla á Bessastöðum og var stemningin einkar dauf eins og gefur að skilja.
Freyja Haraldsdóttir, fyrrverandi þingmaður og baráttukona fyrir réttindum fatlaðra, er ein þeirra kvenna sem kemur fyrir á upptökunum en talað var um hana með mjög niðrandi hætti, hún meðal annars uppnefnd „Freyja eyja“ og umdeilt hljóð heyrðist á upptökunni þar sem heyra má líkja eftir hljóði úr sel. Freyja tjáði sig um upptökuna föstudaginn 30. nóvember þar sem hún sagði meðal annars að ummælin séu skýrt dæmi um birtingarmynd kvenfyrirlitningar og fötlunarfyrirlitningar.
Sama dag voru Karl Gauti og Ólafur reknir úr Flokki fólksins en stjórn flokksins hafði skorað á þá daginn áður að segja af sér. Þeir ætla að sitja áfram á Alþingi sem óháðir þingmenn. Skömmu síðar barst tilkynning frá Miðflokknum þar sem greint var frá því að Gunnar Bragi og Bergþór hafi tekið sér leyfi frá þingstörfum.
Laugardaginn 1. desember, á 100 ára afmæli fullveldis Íslands, var boðað til mótmæla á Austurvelli þar sem krafist var afsagnar þingmannanna sex. Mótmælin voru friðsamleg og fjölmenn – Austurvöllur var þétt skipaður mest allan tímann.
Sigmundur Davíð hringdi í Freyju sunnudaginn 2. desember og bað hana afsökunar. Hún segir hins vegar að ekki sé um afsökunarbeiðni að ræða þar sem Sigmundur hafi samtímis „reynt að hrútskýra, eftiráskýra og hreinlega ljúga til um það sem átti sér stað.“ Þá útskýrði hann fyrir henni að selahljóðið umtalaða væri líklega stóll að hreyfast.
Andrúmsloftið var spennuþrungið á Alþingi mánudaginn 3. desember og fundaði forsætisnefnd þingsins um málið um morguninn. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, greindi frá því við upphaf þingfundar að málinu hefði verið vísað siðanefndar Alþingis sem hefur því verið virkjuð í fyrsta sinn og er málið rannsakað sem mögulegt siðabrotamál.
Um kvöldið fór leikhópur úr Borgarleikhúsinu með leiklestur á samtali þingmannanna. Sama kvöld var Sigmundur Davíð í viðtali í fréttum Stöðvar 2 þar sem hann sagði að selahljóðið gæti verið „reiðhjól að bremsa fyrir utan gluggann.“
Anna Kolbrún Árnadóttir, eina konan sem tók í samræðunum á barnum 20. nóvember, greindi frá því í viðtali við Morgunblaðið og mbl.is þriðjudaginn 4. desember að hún muni ekki segja af sér. „Ég geri mér grein fyrir því að ég lét þetta viðgangast. En á sama tíma geri ég mér fulla grein fyrir því að það er ekki á mína ábyrgð að stoppa það þegar drukknir menn tala,“ sagði Anna Kolbrún meðal annars í viðtalinu.
Miðvikudaginn 5. desember var Lilja Dögg Alfreðsdóttir í viðtali í Kastljósi þar sem hún sagði ummæli þingmannanna óafsakanleg, en hljóðupptökur sem heyra mennina tala með afar niðrandi hætti um Lilju birtust eins af annarri í vikunni. „Ég upplifi þetta sem ofbeldi. Þeir eru ofbeldismenn,“ sagði Lilja meðal annars.
Í gær, fimmtudaginn 6. desember, fór ekki á milli mála að málið er farið að hafa áhrif á þá vinnu sem fram fer á Alþingi en þá var geint frá því að formenn annarra stjórnarandstöðuflokka boðuðu ekki Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, á samráðsfund flokkanna á þriðjudaginn, en formennirnir funda reglulega til þess að bera saman bækur sínar.
Í dag, föstudaginn 7. desember, dró svo til tíðinda þegar konan sem tók upp samtalið steig fram undir nafni í viðtali við Stundina. Hún heitir Bára Halldórsdóttir og er fötluð hinsegin öryrki.
Erlendir miðlar hafa fylgt málinu eftir frá upphafi og tala þeir flestir um stærðarinnar pólitískt hneykslismál og segir breska ríkisútvarpið íslensku þjóðina vera í áfalli vegna „gróflegs karlrembuspjalls þingmanna.“ BBC fjallar einnig um mótmælin sem fram fóru á laugardag.
Norska ríkisútvarpið var fyrst erlendra miðla til að flytja fregnir af málinu og kallaði það „þriðja kollrakið í íslenskum stjórnmálum á innan við þremur árum“ og vísar til Wintris-máls Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar 2016 og hlutabréfaviðskipta Bjarna Benediktssonar rétt fyrir hrun sem í hámæli komust í fyrra.
New York Times hefur einnig fjallað um málið og segir uppnám ríkja vegna „leynilegrar upptöku um niðrandi ummæla sem einkennast af karlrembu.“ Í greininni gætir þó misskilnings þar sem Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, er titluð sem ráðherra.
Flestir erlendu miðlanna benda einnig á að Ísland hafi lengst af verið í fararbroddi þegar kemur að jafnréttismálum og greinir New York Times frá stolti Íslendinga yfir að prýða efsta sæti lista World Economic Forum´s gender gap index í fyrra yfir jafnréttismál.
TV2 í Danmörku hefur líklega fjallað einna mest um málið, en Danadrottning og forsætisráðherra Danmerkur, voru einmitt nýkomin til landsins þegar Klausturmálið skall á.
Málinu er hvergi nærri lokið en hver þróunin verður á eftir að koma í ljós. Siðanefnd Alþingis mun gefa sér tíma til að fara yfir málið sem verður rannsakað sem siðabrotamál. Hversu lengi Karl Gauti og Ólafur verða óháðir þingmenn og hvenær Gunnar Bragi og Bergþór koma til baka úr leyfi mun einnig koma í ljós og þá verður áhugavert að fylgjast með störfum þingsins. Fullvíst er hins vegar að fjölmiðlar, innlendir sem erlendir, munu halda áfram að fylgjast með.