Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur samþykkt beiðni Óla Björns Kárasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um að fundur, eða fundir, nefndarinnar þar sem ræða á ummæli þingmanna Miðflokksins um meinta sendiherrastöðu fyrir Gunnar Braga Sveinsson, verði opnir.
Fram kom í síðustu viku, að nefndin hefði samþykkt að kalla þingmennina Bjarna Benediktsson, Sigmund Davíð Gunnlaugsson, Guðlaug Þór Þórðarson og Gunnar Braga Sveinsson fyrir nefndina vegna ummæla um meinta sendiherrastöðu fyrir Gunnar Braga.
Óli Björn greinir frá þessu í færslu á Facebook.
Hann segir jafnframt, að í reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis sem sendir séu út í sjónvarpi og á vef Alþingis, segi að formanni viðkomandi nefndar beri að leita eftir því með hæfilegum fyrirvara að gestur komi á opinn fund og gera honum grein fyrir efni fundarins.
„Þá skuli fjölmiðlar „eiga þess kost að láta fulltrúa sína fylgjast með opnum fundi. Jafnframt skal fundurinn opinn almenningi eftir því sem húsrúm leyfir.“
Ljósvakamiðlum sé heimilt að hafa beinar útsendingar frá fundum nefnda sem eru opnir.
Ekki liggur fyrir hvenær fundur (fundir) Stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar verður,“ skrifar Óli Björn.