Flutningabíll valt við Kúagerði á Reykjanesbraut rétt fyrir klukkan tíu í morgun en bálhvasst er á Suðurnesjum. Samkvæmt upplýsingum frá Brunavörnum Suðurnesja er bílstjórinn ekki talinn alvarlega slasaður.
Bíllinn var á leið til Keflavíkur þegar hann valt. Bílstjórinn var laus í bílnum þegar sjúkraflutningamenn komu á vettvang.
Mikill vindur er á suðvesturhorni landsins og fer hann í 30 m/s í hviðum á Reykjanesbrautinni.