Félag íslenskra bifreiðaeigenda mun beita sér harðlega gegn öllum hugmyndum þingmanna um auknar álögur á bíla og umferð. Félagið mótmælir „yfirstandandi hraðferð vegtolla í gegnum Alþingi“.
Þetta segir í tilkynningu frá félaginu, FÍB, þar sem vinnubrögð þingmanna eru jafnframt sögð „fullkomlega óboðleg.“ Meirihluti samgöngunefndar Alþingis mun í mars leggja til að veggjöld verði tekin upp um allt landið til að fjármagna vegagerð. Þar með taldar eru allar stofnbrautir inn og út úr höfuðborginni.
FÍB leggst gegn þessu „vegna þess að þar er verið að leggja nýja skatta ofan á háa skatta sem bíleigendur og umferð bera nú þegar“. Þá segir félagið að vegtollar mismuni vegfarendum eftir búsetu og ferðatilgangi og leggist þannig þyngst á þá sem minna hafa aflögu. Þannig taki svona gjöld jafnt til námsmannsins á sparneytna smábílnum og til eiganda 30 milljóna króna lúxusjeppans.
FÍB rengir þá ummæli Sigurðar Inga Jóhannssonar samgönguráðherra í fréttum RÚV í gær um að allir sem hefðu komið fyrir samgöngu- og umhverfisnefnd hafi verið hlynntir vegtollunum. FÍB kveðst hafa lýst eindregnum mótmælum yfir þar.
Í samtali við mbl.is fyrr í dag sagði Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata að veggjöldin væru í raun og veru ekki til umræðu á þinginu, heldur væri hér verið að láta eins og nefndarálit samgöngu- og umhverfisnefndar hefði sama gildi og þingsályktunartillaga, nokkuð sem mun ekki liggja fyrir fyrr en í fyrsta lagi í mars.
Þar að auki benti hann á að gjaldtöku á Reykjanesbraut hefði verið mótmælt, sem stangast enn á við orð Sigurðar Inga í gær.