Þrumur og eldingar eru tiltölulega sjaldgæfar á Íslandi, hvað þá í desember, en Twitter-notendur láta ekki sitt eftir liggja í að tjá sig um veðrið sem nú gengur yfir Suðvesturland. Flestir sjá á þessu spaugilegar hliðar á meðan öðrum er minna skemmt.
annað hvort er eitthvað creep að taka myndir inn um gluggann heima hjá mér eða það eru eldingar
— glówdís (@glodisgud) 11 December 2018
Kósý þessar eldingar yfir #Reykjavík núna, og auðvitað þrumurnar líka. Leiðinlegt að ná þeim ekki á mynd með Friðarsúlunni samt.
— Greipur Gíslason (@GreipurGisla) 11 December 2018
Þrumur og eldingar og klausturkæra. Ég trúi ekki að þetta sé tilviljun. pic.twitter.com/YCmwNu4G5q
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) 11 December 2018
Eldingar í desember.
— Zen Gylfi Sig (@BoringGylfiSig) 11 December 2018
Allt eðlilegt hér
eitt sinn var ég lítil og mamma sagði mér að það gætu ekki komið þrumur og eldingar á Íslandi, heimurinn Just proved hér wrong haha feis mamma
— Arndís María (@ARNDISM) 11 December 2018
Stormur, slydda, þrumur og eldingar og ég er auðvitað að fara að horfa á barnið keppa í fótbolta...úti! #fótbolti #fótboltaneðalífið #harkan pic.twitter.com/97OAzUauly
— Ásdís Eydal (@asdis_eydal) 11 December 2018
Áhugaverðasta jógaslökun sem ég hef verið í. Veit núna að maður sér eldingar gegnum lokuð augu.
— Dagny Aradottir Pind (@dagnyara) 11 December 2018
Ok þrumur og eldingar eru kúl en hérna kvíði sem segir “sjiiit næsta elding lendir á húsinu þínu ;)” ekki kúl
— JÓLinda 🎅🏼 (@lindaerekkicool) 11 December 2018