Aflið fær 18 milljónir frá ríkinu

Hjalti Ómar Ágústsson, Ásmundur Einar Daðason og Elínbjörg Ragnarsdóttir.
Hjalti Ómar Ágústsson, Ásmundur Einar Daðason og Elínbjörg Ragnarsdóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Aflið á Akureyri, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, fær 18 milljóna króna framlag frá ríkinu til að standa straum af starfsemi sinni sem felst í þjónustu við þolendur kynferðis- og heimilisofbeldi, samkvæmt nýjum samningi sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur gert við samtökin.

Ásmundur Einar og Hjalti Ómar Ágústsson fyrir hönd Aflsins undirrituðu samninginn á Akureyri í gær. Samningurinn er til eins árs, að því er segir á vef Stjórnarráðsins. 

„Þjónusta Aflsins felst í faglegri ráðgjöf og stuðningi við þolendur, forvarnarfræðslu og handleiðslu. Aflið var stofnað árið 2002 í framhaldi af tilraunastarfsemi Stígamóta og Jafnréttisstofu. Undanfarin ár hefur Aflið verið með þjónustusamning við Akureyrarbæ og átt í samvinnu við bæjaryfirvöld sem á móti veitt hafa félaginu afnot af húsnæði fyrir starfsemi sína í Aðalstræti 14. Samstarfið felst  meðal annars í viðveru og sýnileika sjálfboðaliða á vegum Aflsins á fjölmennum viðburðum og einnig á tjaldstæðum og víðar þegar margmennt er í bænum um helgar. Auk þess veita ráðgjafar Aflsins fræðslu í grunnskólum bæjarins samkvæmt samkomulagi,“ segir í tilkynningu. 

Ásmundur Einar segir í tilkynningu, að starfsemi Aflsins skipti miklu máli eins og komi glöggt fram í nýjustu ársskýrslu samtakanna þar sem meðal annars sé birt tölfræði sem varpar ljósi á umfangið. Árið 2017 fjölgaði til að mynda einstaklingsviðtölum um 15,3% frá fyrra ári og voru þá rúmlega 1.400 talsins, nýjum skjólstæðingum fjölgaði um 43% milli ára og svo mætti áfram telja. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert