Einn spilari var með allar tölurnar réttar í Lottóleik kvöldsins og fær hann rúma 41 milljón króna, en vinningsmiðinn var keyptur í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði.
Tveir deila síðan með sér bónusvinninginum og fá þeir hvor 324 þúsund í sinn hlut. Annar miðinn er í áskrif, en hinn var keyptur á lotto.is.
Enginn var með fimm rétta í Jókernum, en sjö fengu fjórar tölur réttar og fær hver og einn þeirra 100 þúsund krónur.
Tölur kvöldsins voru: 14, 16, 18, 37, 38
Bónustalan var: 5
Jókertölurnar voru: 2, 5, 6, 4, 2