Í Reykjavík verða 10 áramótabrennur um áramótin og verða brennurnar með svipuðu sniði og undanfarin ár. Stærstu brennurnar verða við Geirsnef, Gufunes og Fylkisbrennan við Rauðavatn.
Byrjað verður að hlaða í kestina miðvikudaginn 27. desember. Á vef Reykjavíkurborgar segir að best sé að fá hreint timbur á brennurnar. Stærstur hluti þess sem fer á brennurnar eru vörubretti en einnig er fenginn afgangur af jólatréssölunni. Plast, gúmmí og unnið timbur á ekki erindi í köstinn.
Starfsmenn hverfastöðva Reykjavíkurborgar verða á vettvangi við flestar brennurnar og leiðbeina þeim sem koma með efni. Hætt verður að taka á móti efni þegar þær eru orðnar hæfilega stórar eða í síðasta lagi kl. 12.00 á gamlársdag.
Eldur verður borinn að köstunum kl. 20.30 á gamlárskvöld á öllum stöðum með tveimur undantekningum. Á Úlfarsfelli er tendrað kl. 15.00 um daginn og í Skerjafirði er eldur borinn að kestinum kl. 21.00 eftir blysför sem hefst kl. 20.30.
Brennurnar verða eftirfarandi:
1) Við Ægisíðu, lítil brenna.
2) Í Skerjafirði gegnt Skildinganesi 48 - 52, (tendrað kl. 21.00, eftir blysför sem hefst kl. 20.30), lítil brenna.
3) Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð, lítil brenna.
4) Laugardalur, fyrir neðan Laugarásveg 18, lítil brenna.
5) Geirsnef, á norðanverðu Geirsnefi, stór brenna.
6) Við Suðurfell, lítil brenna
7) Við Rauðavatn að norðanverðu, stór brenna.
8) Gufunes við Gufunesbæ, stór brenna.
9) Við Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna.
10) Úlfarsfell á athafnasvæði Fisfélagsins ofan við Lambhagaveg, (tendrað kl. 15.00), lítil brenna.
Hægt er að sjá nánari upplýsingar um brennurnar á vef Reykjavíkurborgar.