„Eins og allt hafi brugðist þarna“

Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Fólks flokksins.
Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Fólks flokksins. mbl.is/Eggert

„Ég er ánægð með þessa skýrslu. Mér finnst hún mjög aðgengileg og ítarleg. Það er auðvelt að sjá helstu niðurstöður, en það var mér mikil áfall að sjá þessar niðurstöður. Ég átti von á ýmsu en ekki því að hún væri svona svakalega svört,“ segir Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins í samtali við mbl.is um skýrslu innri endurskoðunar um Nauthólsveg 100.

„Það er eins og allt hafi brugðist þarna sem átti að standast. Þarna er eitthvað „ofur-traust“ í gangi og hver og einn að dúlla dálítið í sínu horni og þeir sem áttu að fylgjast með eru bara alls ekkert að því, það er borgarritari og borgarstjóri. Borgarráð fær rangar upplýsingar svo borgarráð getur ekki tekið rétt mat á stöðunni og það eru allir bara sofandi á verðinum þarna,“ segir Kolbrún.

„Þetta er stjórnunarvandi, þarna er ekki verið að stýra hlutunum,“ bætir hún við. Aðspurð hvort hún telji að einhver eigi að bera pólitíska ábyrgð á málinu, segir hún að í öðrum þjóðum yrði eflaust farið fram á „afsögn æðsta embættismannsins, sem ber höfuðábyrgðina.“

„En hér á Íslandi virðist það nánast sama hvað er gert og sama hversu mikill skandallinn er, það er eins og fólk bara bíði þetta af sér og svo gleymist þetta og fennir yfir þetta og það er haldið áfram eins og ekkert sé,“ segir Kolbrún og bætir við að borgarstjóri myndi að hennar mati taka „alvöru ábyrgð“ með því að stíga til hliðar vegna þessa máls, en ekkert útlit væri fyrir að hann myndi gera það.

Bókun Flokks fólksins vegna málsins, sem lögð var fram á borgarráðsfundi í morgun:

Skýrsla  innri endurskoðunar um  Nauthólsveg 100 er svört og mikið áfall. Í henni er rakið hvernig hver þáttur á eftir öðrum stríddi gegn góðum stjórnsýsluháttum. Nefna má að verkefnin voru ekki boðin út, kostnaðareftirlit var ábótavant, ekki voru gerðir samningar, margar vinnustundir skrifaðar og á einum tímapunkti voru 18 verktakar í vinnu.  Reikningar voru samþykktir en ekki fylgst með að útgjöld væru innan fjárheimildar. Í frumkostnaðaráætlun vantaði marga þætti og sú áætlun sem gerð var, var ekki virt. Fram kemur að innkauparáð fékk ekki réttar upplýsingar, skýrslu ráðsins var ekki fylgt eftir. Biðlund ráðsins var of mikil eftir því sem fram kemur. Eitt það alvarlegasta er að borgarráð fékk rangar upplýsingar. Flokkur fólksins myndi vilja fá álit frá aðila utan borgarkerfisins á broti á  innkaupareglum og umboðsþáttum. Fram kemur að misferlisáhætta er mikil en skortur er á sönnunum. En liðið er liðið og ekki er efast um borgarmeirihlutinn mun draga af þessu lærdóm og breytingar gerðar í kjölfarið til að koma í veg fyrir að svona lagað endurtaki sig. En er þar með verið að draga eitt stórt pennastrik yfir Nauthólsveg 100?  Borgarfulltrúa Flokks fólksins finnst enn mörgum spurningum ósvarað og þá kannski helst sú,  mun einhver ætla að axla á þessu ábyrgð?

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert