Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, krefst þess að Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, segi af sér vegna Braggamálsins svonefnda. Þetta kemur fram í færslu hennar á Facebook.
„Dagur B Eggertsson hefur ráðið ríkjum í ráðhúsinu í Reykjavík frá árinu 2010 og hefur setið í borgarstjórn frá árinu 2002. Hann hefur því langa reynslu. Hann hefur í valdatíð sinni gert fjölda skipulagsbreytinga sem út á við áttu að tryggja örugga verkferla borgarkerfisins, auka skilvirkni og gegnsæi en voru fyrst og fremst gerðar í þágu pólitískra samherja,“ ritar Marta og bætir því við að það, að gefa Degi kost á að „moka yfir eigin mistök“ með „enn einni nefndinni“ og skipulagsbreytingunni sé ekki lengur í boði.
„Eyðslufylleríið, sem Innri endurskoðun hefur nú staðfest í skýrslu sinni, má rekja til þess að borgarstjóri sat auðum höndum í stað þess að bregðast við alvarlegum ábendingum Innri endurskoðunar árið 2015. Að lágmarki hefði hann átt að vera vakandi fyrir því sem gert var á skrifstofu þeirri í borgarkerfinu sem heyrir beint undir hann,“ segir Marta sem vísaði til þáttar Kastljóss í síðustu viku þar sem Dagur kom fram. Marta segir að borgarstjóri hafi í þættinum ekki átt nein svör.
„Honum ber skylda til að stjórna í umboði borgarstjórnar og fylgjast náið með rekstri og framkvæmdum borgarinnar. Það er engin afsökun fyrir hann að benda á að tilteknir embættismenn hafi látið undir höfuð leggjast að greina honum frá óheyrilegri framúrkeyrslu. Slíkur útúrsnúningur færir borgarstjóra ekki skjól og því miður er hann ekki trúverðugur. Miklu frekar dregur hann enn frekar úr trausti til borgarstjóra,“ segir Marta. „Borgarstjóri getur ekki vikið sér undan að axla ábyrgð í þessu alvarlega máli og ber að segja af sér strax,“ segir hún.