Heildarlán Vegagerðarinnar fyrir vegaframkvæmdum sem sett verða í forgang verða borguð með veggjöldum. Frá þessu greinir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í samtali við RÚV. Heildarlánið verður minnst 50 til 60 milljarðar króna og stefnt er að því að þau verði borguð að loknum verktíma sem yrði í fyrsta lagi 2024.
Sigurður Ingi segir í samtali við RÚV að þær framkvæmdir sem hann sjái fyrir sér að fái forgang verði á leiðum inn og út af höfuðborgarsvæðinu, svo sem Reykjanesbraut, Suðurlandsvegur og Vesturlandsvegur inn í borgina.
Afgreiðslu samgönguáætlunar til næstu fimm ára og lengri tíma hefur verið frestað til 1. febrúar á næsta ári. Þingsályktunartillögur samgönguráðherra um áætlunina hafa verið til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd þingsins frá því í lok september. Málið hefur tekið þá stefnu á þessum tíma að stuðningur hefur vaxið við hugmyndir um flýtingu vegaframkvæmda með lántöku og innheimtu veggjalda.
Til stendur að ríkisstjórnin fái heimild til að stofna félag í þeim tilgangi að safna fé að tilteknum framkvæmdum hringinn í kringum landið. Áherslan verði þó mest á leiðum umhverfis höfuðborgina, að sögn Sigurðar Inga. Fénu verður safnað saman í sjóð sem á helst að vera í vörslu Vegagerðarinnar og fé úr sjóðnum á eingöngu að fara í þessar tilteknu framkvæmdir. Tilgangurinn er að hafa fjármögnunina eins ódýra og skilvirka og hægt er, að sögn ráðherra.
Ekki hefur verið útfært hverjir muni veita lánin til framkvæmdanna.