Gjaldskrárbreytingar vegna heilbrigðisþjónustu

Heilsugæsla miðbæjarins við Vesturgötu er ein 15 opinberra heilsugæsla á …
Heilsugæsla miðbæjarins við Vesturgötu er ein 15 opinberra heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Árni Sæberg

Bótafjárhæðir slysatrygginga almannatrygginga og sjúkradagpeningar hækka 1. janúar um 3,6% til samræmis við launa- og verðlagsuppfærslur fjárlaga. Gjaldskrár vegna heilbrigðisþjónustu hækka að sama skapi sem þessu nemur, að undanskildum komugjöldum í heilsugæslu.

Breytingar verða á greiðsluþátttöku fyrir tæknifrjóvgun og vegna þjálfunar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu.

„Í reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu er kveðið er á um gjöld sem sjúkratryggðir skulu greiða fyrir heilbrigðisþjónustu sem veitt er á heilsugæslustöðvum, sjúkrahúsum og Heyrnar- og talmeinastöðinni og fyrir heilbrigðisþjónustu sem veitt er af sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólki sem starfar á grundvelli samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Um áramótin hækka greiðslur fyrir þessa þjónustu um 3,6% að undanskildum komugjöldum í heilsugæslu sem falla niður hjá öldruðum og öryrkjum og haldast að öðru leyti óbreytt að krónutölu,“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur einnig fram að með reglugerðinni verður einnig gerð sú breyting um áramótin að þeir sem hafa verið metnir í þörf fyrir sjúkra- iðju- eða talþjálfun eiga rétt á allt að 15 meðferðartímum á einu ári í stað 20 áður. Sjúkratryggingar geta veitt heimild fyrir fleiri meðferðartímum með greiðsluþátttöku að uppfylltum nánari skilyrðum samkvæmt vinnureglum sem stofnunin setur.

Heilbrigðisráðherra hefur einnig sett reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði vegna tæknifrjóvgunarmeðferðar. Undanfarin ár hefur engin greiðsluþátttaka verið vegna fyrstu meðferðar en frá 1.  janúar verður 5% greiðsluþátttaka vegna fyrstu glasafrjóvgunar og smásjárfrjóvgunar.

Heilbrigðisráðherra hefur jafnframt sett reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra vegna dvalar í hjúkrunarrýmum og dvalarrýmum á stofnunum sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2019 og sem eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert