Framlög til vegagerðar of lág

Sigurður Ingi Jóhannsson.
Sigurður Ingi Jóhannsson. mbl.is/Sigurður Bogi

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, segir vegakerfið víða laskað og illa undirbúið fyrir hinn mikla umferðarþunga sem hafi orðið á síðustu árum.

Hann segir á Facebook-síðu sinni framlög til vegagerðar hafa verið of lág og þau haldist ekki í hendur við aukið álag.

„Fjármagn vegna ökutækja og eldsneytis skila ríkissjóði um 47 milljarða [sic] og er hlutfall þess sem rennur til vegagerðar um 70%, eins og meðfylgjandi mynd ber með sér. Restin fer í okkar sameiginlegu sjóði sem deilist út í heilbrigðiskerfið, tollgæslu, löggæslu ofl [sic] m.a. til að standa undir kostnaði við eftirlit og afleiðingar af notkun ökutækja,“ segir ráðherra.

Gjöldin sett eru á vegna ökutækja eru: Almennt vörugjald af bensíni, sérstakt vörugjald af bensíni, olíugjald, kolefnisgjald, bifreiðagjald, kílómetragjald og þungaskattur.

Ekki hefur verið litið á virðisaukaskatt af innflutningi af bifreiðum, varahlutum o.s.frv. sem fjármagn til vegagerðar heldur frekar til að fjármagna heilbrigðis-, mennta- og velferðarkerfið og fleira, að sögn Sigurðar Inga.

Hann bætir við að svokallaðar „markaðar tekjur“ (sem nú sé aflagt hugtak í fjárlögum) séu um 19 milljarðar króna á árinu 2018 og hafa þær alltaf farið allar beint til vegagerðar.

„Fjármagn til vegamála þarf að taka mið af stöðu svæða, ferðaþjónustu og öryggissjónarmiðum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert