Algengt verð fyrir íslensk debet- og kreditkortanúmer er á bilinu 850 til 6.000 krónur.
Upplýsingarnar ganga nú kaupum og sölum á djúpvefnum um kortanúmer sem þjófar hafa komið höndum yfir, en í sumum tilfellum er einnig hægt að kaupa PIN-númer kortanna og kennitölur eigenda þeirra.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Hermann Þ. Snorrason, sérfræðingur hjá Landsbankanum, öll met hafa verið slegin í fjölda fyrirmælafalsana og netveiða árið 2018. „Þannig kom aldrei sú vika það ár að við værum laus við þessi svik,“ segir hann.