Ókeypis í fyrstu krabbameinsskoðun

Tilraunaverkefnið nær til kvenna sem verða 23 ára og 40 …
Tilraunaverkefnið nær til kvenna sem verða 23 ára og 40 ára á árinu og munu þær fá ókeypis fyrstu skimun fyrir krabbameini í leghálsi og brjóstakrabbameini á vegum Leitarstöðvarinnar árið 2019. Ljósmynd/Krabbameinsfélagið

Konur sem verða 23 ára og 40 ára á árinu fá ókeypis fyrstu skimum fyrir krabbameini í leghálsi og brjóstakrabbameini á vegum Leitarstöðvarinnar árið 2019. Tilraunin er fjármögnuð af Krabbameinsfélaginu.

Á undanförnum árum hefur heldur dregið úr þátttöku kvenna hér á landi í skimun fyrir krabbameinum og er hún minni en á hinum Norðurlöndunum. Í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu segir að miklu skipti að snúa þeirri þróun við. Krabbameinsfélagið hefur því ákveðið að ráðast í tilraunaverkefni til að kanna hvort kostnaður við skimunina hafi áhrif á þátttöku kvenna. „Félagið telur mikilvægt að skimun verði gjaldfrjáls og hefur lagt það til við stjórnvöld, ekki síst til að tryggja jafnt aðgengi að skimun,“ segir í tilkynningu.

Haft er eftir Höllu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins, að félagið meti það svo að kostnaður kvenna geti haft áhrif á þátttöku þeirra í skimuninni. „Þess vegna ákvað félagið að ráðast í tilraunina með það að markmiði að kanna hvort ókeypis skimun muni auka þátttöku kvenna.“

Greiðsla kvenna er nú 4.700 krónur fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi og sama upphæð fyrir skimun fyrir brjóstakrabbameini (aldraðir og öryrkjar greiða 2.400 krónur).

Þar sem um tilraunaverkefni er að ræða nær það einungis til kvenna sem fæddar eru árið 1996 og mæta í fyrsta sinn í leghálsskimun árið 2019 og til kvenna sem fæddar eru árið 1979 og mæta í fyrstu skimun fyrir brjóstakrabbameini á þessu ári á Leitarstöð Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík eða á heilsugæslustöðvum í samstarfi við Leitarstöðina.

Konur sem fæddar eru árin 1996 og 1979 munu í upphafi árs fá kynningarbréf frá Leitarstöðinni um reglubundna skimun fyrir krabbameini í leghálsi og brjóstum, en árið 2019 stendur þessum árgöngum í fyrsta sinn til boða að mæta í skimun. Síðar á árinu fá þær sent boð um þátttöku í skimuninni. Mikilvægt er að panta tíma sem fyrst þegar boð kemur frá Leitarstöðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert