Verulega dró úr ávísun ópíóíða

Talsverðar breytingar urðu á liðnu ári á ávísunum helstu tauga- …
Talsverðar breytingar urðu á liðnu ári á ávísunum helstu tauga- og geðlyfja hér á landi.

Verulega dró úr ávísunum ópíóíða árið 2018 á Íslandi að því er fram kemur í nýrri samantekt embættis landlæknis um ávísanir tauga- og geðlyfja. Fram kemur að talsverðar breytingar hafi orðið á ávísunum helstu tauga- og geðlyfja og að notkun slíkra lyfja sé hvergi hærri á Norðurlöndum en á Íslandi. Íslendingar noti afgerandi meira af örvandi lyfjum á borð við metýlfenídat, en einnig mest af þunglyndislyfjum.

Árið 2018 dró í fyrsta sinn úr ávísunum methýlfenidats hér á landi, en notkun þess hafði farið hratt vaxandi undanfarin ár. Notkunin er enn langt umfram það sem er á hinum Norðurlöndunum og var þreföld á síðasta ári miðað við árið 2008. Ávísanir þunglyndis- og geðrofslyfja aukast áfram og auka þar með sérstöðu Íslands í samanburði við Norðurlöndin.

Skjáskot/Embætti landlæknis

Milli áranna 2017 og 2018 dró úr ávísunum fyrir mörg ávanabindandi lyf og munar þar mest um einstök verkjalyf að því er fram kemur á vef embættis landlæknis. 

Á meðan dregur úr ávísun Zópíklóns aukast ávísanir Zolpídem. Þau ávanabindandi lyf sem aukast mest eru Gabapentín og Pregabalín sem bæði flokkast sem flogaveikilyf en eru einnig notuð við kvíða og verkjum. Þó að Gabapentín sé ekki talið mjög ávanabindandi þá hefur komið í ljós að það er eitt af þeim lyfjum sem einstaklingar fara á milli lækna til að fá ávísað lyfinu,“ segir þar.

Skjáskot/Embætti landlæknis
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert