Suðurnesjabær er orðið opinbert heiti sveitarfélagsins sem varð til við sameiningu Sandgerðis og Garðs, en sameiningin tók gildi í júní á síðasta ári.
Sveitarstjórnarráðuneytið lagði blessun sína yfir heiti sveitarfélagsins eftir að bæjarstjórn samþykkti að fylgja niðurstöðu íbúakosninga um nafngiftina. Nýja nafnið tók formlega gildi á nýársdag.
Íbúar sveitarfélagsins kusu um nafn í byrjun nóvember og þar varð nafnið Suðurnesjabær hlutskarpast. Kosningaþátttaka var 34,44% og hlaut Suðurnesjabær 75,3% atkvæða. Nöfnin Sveitarfélagið Miðgarður og Heiðarbyggð komu einnig til greina, en vilji íbúa í Suðurnesjabæ var skýr.
Fram kemur í áramótaávarpi Magnúsar Stefánssonar bæjarstjóra á vef sveitarfélagsins að unnið sé að því að finna Suðurnesjabæ nýtt byggðarmerki.