Aðalmeðferð í máli tveggja manna sem ákærðir eru fyrir alvarlega líkamsárás gegn dyraverði á skemmtistaðnum Shooters 26. ágúst hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Ákæran er í tveimur liðum en í fyrri lið hennar eru mennirnir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa í félagi við tvo óþekkta karlmenn veist með ofbeldi að dyraverði og veitt honum ítrekuð hnefahögg í andlit, höfuð og líkama. Auk þess fyrir að hafa sparkað ítrekað í líkama hans og annar mannanna er ákærður fyrir að hafa veitt fórnarlambinu þrjú hnéspörk í andlit.
Í seinni lið ákærunnar er annar mannanna ákærður fyrir stórfellda líkamsárás, með því að hafa veist með ofbeldi að öðrum dyraverði og veit honum hnefahögg í andlit, elt dyravörðinn sem reyndi að komast undan og hrint þannig að dyravörðurinn féll fram fyrir sig niður tvö þrep.
Árásarmaðurinn er enn fremur sakaður um að hafa veitt dyraverðinum nokkur hnefahögg og spörk í andlit og höfuð þar sem hann lá. Fórnarlambið er lamað fyrir neðan háls eftir árásina.
Við þingfestingu málsins í desember játuðu mennirnir sök í fyrri lið ákæru. Með því að játa fyrri ákærulið er gengist við því að hafa veist að öðrum brotaþolanum, þeim sem ekki hlaut lífshættulega áverka.
Við þingfestingu voru bótakröfur tengdar fyrri ákærulið samþykktar af hvorum tveggja hinna ákærðu, þó með þeim hætti að upphæðin sjálf verði lögð aftur í mat dómsins en ekki samþykkt eins og hún er, en krafan er upp á 2,5 milljónir króna.
Bótakröfurnar fyrir seinni liðinn eru mun hærri en þar lamaðist brotaþoli, eins og segir. Hinn ákærði hafnaði við þingfestingu liðnum sem heild, að undanskildum hnefahöggum sem hann gengst við, og hafnar þar af leiðandi bótakröfunum, sem eru upp á 123 milljónir.