Vilja upplýsingar í tengslum við slys á Hringbraut

mbl/Arnþór

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir því að ná tali af þeim einstaklingum sem urðu vitni að umferðarslysi að morgni þann 9. janúar kl. 08:27 á gatnamótum Hringbrautar og Meistaravalla, en þar var ekið á barn.

„Jafnframt óskar lögregla eftir því að þeir einstaklingar sem komu ökumanni og hinum slasaða til aðstoðar á vettvangi seti sig í samband við lögreglu.

Í umrætt sinn varð gangandi vegfarandi fyrir ökutæki sem ekið var austur Hringbraut að Meistaravöllum. Viðkomandi er beðinn um að hafa samband í síma 444 1000,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert