Borgarlögmaður er ekki í aðstöðu til að leggja mat á það hvort saknæm háttsemi kunni að hafa átt sér stað í tengslum við braggamálið.
Fréttastofa RÚV hefur þetta eftir Ebbu Schram borgarlögmanni, en Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, tilkynnti á borgarráðsfundi á föstudag að hún og Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, myndu sameiginlega leggja fram tillögu til borgarstjórnar um að skýrslu innri endurskoðunar verði vísað til frekari rannsóknar hjá héraðssaksóknara.
Í svari Ebbu við fyrirspurn RÚV segir að engin athugun á því hvort saknæm háttsemi hafi átt sér stað hafi farið farið, né sé hún fyrirhuguð af hálfu borgarlögmanns.
Álit borgarlögmanns um málið var lagt fram í innkauparáði borgarinnar. Þar kom fram að ekki hafi verið skylt að bjóða út framkvæmdir og því hafi lög ekki verið brotin. Ekki hafi hins vegar verið farið eftir innkaupareglum borgarinnar við gerð samninga um framkvæmdina.