Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað sjö manna vísindasiðanefnd til næstu fjögurra ára. Hlutverk nefndarinnar er að meta vísindarannsóknir á heilbrigðissviði og tryggja að þær samrýmist vísindalegum og siðfræðilegum sjónarmiðum. Formaður nýskipaðrar vísindasiðanefndar er Sunna Snædal Jónsdóttir.
Nefndin er skipuð samkvæmt 9. gr. laga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði nr. 44/2014, að því er segir á vef ráðuneytisins.
„Auk fyrrgreinds mats á vísindarannsóknum skal nefndin meta samstarfsverkefni, fjölþjóðlegar rannsóknir, klínískar lyfjarannsóknir og aðrar áætlanir um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði sem ekki falla undir verksvið siðanefnda heilbrigðisrannsókna samkvæmt 11. gr. laganna. Nefndinni er einnig ætlað að taka þátt í almennri og fræðilegri umræðu á vettvangi lífsiðfræði, veita ráðgjöf og birta leiðbeinandi álit um viðfangsefni á verksviði nefndarinnar. Líkt og segir í lögunum skal þess gætt við skipun nefndarinnar að í henni eigi sæti einstaklingar með sérþekkingu á sviði aðferðafræði heilbrigðisvísinda, siðfræði, lögfræði og persónuverndar,“ segir í tilkynningunni.
Sunna Snædal Jónsdóttir er formaður nefndarinnar, sem fyrr segir. Aðrir nefndarmenn eru;