„Það verða margir fundir í undirhópum í dag,“ segir Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, um kjaraviðræður aðildarfélaga sambandsins. „Það er verið að funda í málefnum ræstingafólks og mötuneytisstarfsfólks og eins ætlum við að funda um nýja launatöflu og reyna að þoka þessum málum áfram,“ bætir hann við. „Við munum þó ekki skrifa undir kjarasamning í dag.“
Fundað var í undirhópum í gær og fundirnir sem haldnir verða í dag eru allir með Samtökum atvinnulífsins. „Við erum að reyna að þoka þessum málum áfram eins og við getum í dag og á morgun,“ segir Flosi.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði í samtali við mbl.is í gær að það væri sín skoðun að ágætisgangur væri í kjaraviðræðum, en SA fundaði þann dag með Landssambandi verslunarmanna og Landssambandi iðnaðarmanna.
„Mér finnst ágætisgangur í viðræðunum og það er það sem mestu skiptir. Við erum að ræða alvarleg úrlausnarefni,“ sagði Halldór Benjamín.
Flosi segir það einnig sína skoðun að kjaraviðræður stefni í rétta átt. „Það eru ekki stór skref, en þau eru í rétta átt, sem er gott. Við ætlum að reyna að halda þessum dampi og þessari vinnu áfram á meðan við sjáum að þetta er að þokast í rétta átt.“