Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis fer fram klukkan 10:30 í dag, en á fundinum verður til umræðu skipun Geirs H. Haarde og Árna Þórs Sigurðssonar í embætti sendiherra í ljósi ummæla sem Gunnar Bragi lét falla um högun skipunarinnar á barnum Klaustri í nóvember.
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, sagði við mbl.is í gær að tilgangur fundarins væri að komast að því hvað hafi farið fram og hvort einhverjir eftirmálar kunni að vera.
Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, sem var utanríkisráðherra þegar umræddir einstaklingar voru skipaðir í embætti sendiherra, sagði á Klaustri að Geir hafi verið skipaður gegn því að Gunnar Bragi ætti inni greiða hjá Sjálfstæðisflokknum. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt fullyrðingu Gunnars Braga „tóma þvælu“.
Bjarni og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra voru boðaðir á umræddan fund. Þeir hafa báðir staðfest komu sína. Hvorki Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, né Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hafa boðað komu sína á fundinn.