Niðurstaða Héraðsdóms Reykjaness í gagnaversmálinu er sú að Sindri Þór Stefánsson hafi verið höfuðpaurinn og skipulagt öll innbrotin. Hann hafi fengið aðra ákærða til liðs við sig vegna málsins en ákæruvaldið telur að skýringar Sindra, þess efnis að einhver erlendur fjárfestir sem hann óttist hafi lagt á ráðin með honum um „að ræna þetta lið“, sé fjarstæða og uppspuni.
Sindri sagði fyrir dómi í desember að hann hefði ekki skipulagt innbrotin, heldur væri einungis að fylgja skipunum. Hann gæti ekki tjáð sig um hver hafi veitt honum skipanir af ótta við viðkomandi.
Sindri var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi. Matthías Jón Karlsson var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi og Hafþór Logi Hlynsson í tuttugu mánaða fangelsi. Aðrir sakborningar fengu vægari dóm. Öllum sakborningum var gert að greiða Advania rúmar 33 milljónir króna í skaðabætur.
Sjö voru ákærðir í málinu, sem snerist um innbrot í fjögur gagnaver í desember og janúar og tilraunir til tveggja innbrota í viðbót.
Andvirði þýfisins var metið á 96 milljónir króna en tjónið á 135 milljónir króna. Búnaðurinn hefur ekki fundist.
Í niðurstöðu dómsins kemur fram að ákæruvaldið telji að gögn málsins bendi eindregið til þess að tölvunarfræðingurinn Sindri hafi um langt skeið undirbúið innbrotin, skipulagt þau í þaula og fengið hverjum og einum meðákærðu ákveðið hlutverk í framkvæmd þeirra.
Þorgils Þorgilsson, verjandi Sindra, sagði í samtali við mbl.is að ekki væri búið að taka ákvörðun um hvort dóminum yrði áfrýjað til Landsréttar en að hann teldi það þó líklegt.