Eigendur bifreiðar af gerðinni Land Rover Discovery, sem stolið var frá Bjarnarstíg í Reykjavík í fyrrinótt, hafa ákveðið að veita 200 þúsund krónur í fundarlaun í von um að bíllinn finnist.
Þetta staðfestir Soffía Sigurgeirsdóttir, eigandi bifreiðarinnar, í samtali við mbl.is.
Að hennar sögn hafa vegfarendur orðið bílsins varir í umferðinni nokkrum sinnum síðan tilkynnt var um stuldinn og látið lögreglu vita. Þrír menn hafa sést í og í kringum bílinn.
Bíllinn er svartur af tegundinni Land Rover Discovery og er með skráningarnúmerið TL-L94. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.