Tveir þingmenn stjórnarandstöðunnar, þau Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, og Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar, hófu ræður sínar undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir á Alþingi í dag með því að hnýta í þá Bergþór Ólason og Gunnar Braga Sveinsson, þingmenn Miðflokksins.
Þeir Bergþór og Gunnar Bragi tilkynntu samflokksmönnum sínum í morgun að þeir ætluðu að taka sæti á Alþingi á nýjan leik í dag eftir að hafa farið í launalaust leyfi í kjölfar þess að Klaustursmálið svokallað kom upp í nóvember.
„Ég verð að viðurkenna að það hefur aðeins sett mig úr jafnvægi að sjá Klaustursmenn sitja hér inni í þessum sal eins og ekkert hafi í skorist. En við verðum víst að halda áfram,“ sagði Halldóra og Jón Steindór sagði: „Mér þykir nú heldur skuggsýnt yfir þingsalnum í dag.“