Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur ekki áhyggjur af því að forsætisnefnd Alþingis taki til skoðunar hvort hann og samflokksþingmaður hans Þórhildur Sunna Ævarsdóttir hafi gerst brotleg við siðareglur alþingismanna með ummælum sínum um aksturskostnað Ásmundar.
„Ég hlakka til þess,“ segir Björn Leví í samtali við mbl.is. Hann segir Ásmund hafa rætt lengi um að fara með málið í þennan farveg og hann fagni því að Ásmundur hafi látið slag standa í stað þess að hóta einhverju sem ekki yrði staðið við.
Á Facebook-síðu sinni sagði Björn Leví að til þess að skoða hvort það sem hann hefði sagt bryti í bága við siðareglur þingmanna þyrfti væntanlega að skoða hvort fótur væri fyrir ásökununum sínum. „Sem er einmitt það sem ég vildi að væri gert þegar ég sendi inn erindi sem var vísað frá,“ skrifaði Björn Leví.
Í bréfi sem Ásmundur sendi forsætisnefnd vegna málsins segir hann ummæli Píratanna „bæði grófar aðdróttanir og fullyrðingar um refsiverða háttsemi mína“. Telur hann nauðsynlegt að fá úr því skorið hvort ummælin samrýmist siðareglum.