Kolbrún Baldursdóttir furðar sig á fréttum af því að útilistaverkið Pálmatré hafi borið sigur úr býtum í samkeppninni um útilistaverk í Vogabyggð. Kostnaður vegna verksins nemur 140 milljónum króna.
Í fréttatilkynningu kemur fram að verkefnið verði kostað sameiginlega af Reykjavíkurborg og lóðaeigendum í Vogabyggð. „Og allir skála fyrir þessu,“ segir Kolbrún og spyr í hvaða heimi Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi og formaður dómnefndar, lifi.
Hún segir að með þessu sé staðfest hvar forgangsröðun borgarinnar liggi. Hún sé ekki hjá börnum og fólki sem bíði á biðlista eftir húsnæði eða nái engan veginn endum saman.
„Ég vil minna á biðlista í húsnæði, fólk sem nær ekki endum saman, biðlista barna í alla mögulega þjónustu. Þrá borgarbúar eitthvað suðrænt! Hvar hefur það verið staðfest? Er ekki tímabært að meirihlutinn reyni að fara að snerta jörð?“ spyr Kolbrún.
„Hjálmar Sveinsson lifir í einhverjum allt öðrum heimi en hinn almenni borgarbúi,“ segir Kolbrún og bætir við að hún vilji að allir eigi fyrst og fremst fæði, klæði og húsnæði. „Ekki étur maður pálmatré?“