Rannsaka aðstæður til lagningar sæstrengs til Írlands

Sæsímastrengur tekinn í land á Vestdalseyri við Seyðisfjörð.
Sæsímastrengur tekinn í land á Vestdalseyri við Seyðisfjörð. mbl.is/Steinunn Ásmundsdóttir

Hafnar eru rannsóknir á aðstæðum til að leggja nýjan sæstreng frá Grindavík til Kilalla á vesturströnd Írlands. Iris yrði þriðji sæstrengurinn á milli Íslands og Evrópu.

Fjarskiptasjóður ákvað að láta gera undirbúningsrannsóknir og fól Farice verkið, en fyrirtækið rekur hina tvo strengina, þegar þjónustusamningur við fyrirtækið var endurnýjaður undir lok síðasta árs.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir, að engin ákvörðun hafi þó verið tekin um framhaldið, að rannsóknum loknum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert