Haukur Hilmarsson, sem talinn er hafa fallið í árásum Tyrkja í Afrín í Sýrlandi 24. febrúar 2018, þurfti að lita hár sitt svart og dekkja húð sína til þess að komast fram hjá Rússum og til Afrín, en hann hafði áður verið stöðvaður á leið sinni þangað vegna þess hve ljós hann var yfirlitum.
Þetta kom fram í máli hollensks félaga Hauks, eða Sahins eins og hann var kallaður í Sýrlandi, í Kveik á RÚV í kvöld.
Eftir mánaðalanga baráttu með YPG-sveitum Kúrda í Raqqa héldu Haukur og félagar hans til Afrín í tilraun til þess að koma í veg fyrir að borgin félli fyrir Tyrkjum. Lýsingar félaga Hauks, sem rætt var við í Kveik, eru vægast sagt skelfilegar, en þar þurftu þeir meðal annars að fela sig fyrir sprengjudrónum Tyrkja með regnhlífum.
Félagar Hauks telja víst að hann hafi fallið í loft- og sprengjuárásum Tyrkja þennan dag í febrúar, en þá hafði svæðið sem YPG-sveit Hauks hélt sig á verið umkringt frá þremur hliðum og árásir „fasistanna“ verið hertar.
Kúrdískur sjúkraflutningamaður sem fréttamaður Kveiks ræddi við leitaði fallinna YPG-hermanna en sagði ómögulegt að komast þar að, enda hefðu Tyrkir verið búnir að ná svæðinu. Þeir hafa enn ekki hleypt neinum inn á svæðið, ekki einu sinni hjálparsamtökum á borð við Rauða krossinn.
Félagi Sahins, Hauks, segir að áður en Haukur lést hafi hann sagst vera svo heillaður af Afrin að þar vildi hann búa eftir að stríðinu lyki.