Karlmaður á sextugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. mars vegna gruns um ítrekaðan þjófnað á varningi úr fríhöfn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þegar hann var handtekinn nú síðast í flugstöðinni fundust í fórum hans sjö sígarettukarton, áfengi og ilmvötn, samtals að verðmæti um 125 þúsund krónur.
Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að talið sé að maðurinn tilheyri hópi manna af erlendum uppruna sem stundi með skipulögðum hætti þjófnað á dýrum varningi úr verslunum í flugstöðinni en þó aðallega á sígarettum. Kom fyrst til afskipta af hópnum í ágúst 2018 og fór þá hluti hópsins af landinu en karlmaðurinn er búsettur hér á landi og hefur haldið uppteknum hætti, segir í tilkynningunni.
Stundaði hópurinn að kaupa ódýra flugfarmiða og skrá sig til flugs en í stað þess að fara í flugið lét hópurinn greipar sópa um verslanir í brottfarasal flugstöðvarinnar. Upp komst þegar háttalagið þegar tollverðir í flugstöð Leifs Eiríkssonar stöðvuðu ferðir einstaklinga úr hópnum. Við húsleit á heimilum grunaðra var lagt hald á mikið magn sígarettukartona og annars konar varnings sem talinn er vera úr verslunum í flugstöðinni.