Lof mér að falla með 12 tilnefningar

Kristín Þóra Haraldsdóttir í Lof mér að falla.
Kristín Þóra Haraldsdóttir í Lof mér að falla.

Kvikmyndin Lof mér að falla eftir Baldvin Z hlýtur flestar tilnefningar til Edduverðlaunanna í ár, samtals 12. Myndin er tilnefnd sem kvikmynd ársins, fyrir leikstjórn og handrit. Elín Sif Halldórsdóttir er tilnefnd fyrir leik í aðalhlutverki og Kristín Þóra Haraldsdóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttur og Þorsteinn Bachmann fyrir leik í aukahlutverki.

Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson hlýtur næstflestar tilnefningar, samtals 10. Myndin er tilnefnd sem kvikmynd ársins, fyrir leikstjórn og handrit. Halldóra Geirharðsdóttir er tilnefnd fyrir leik í aðalhlutverki.

Andið eðlilega eftir Ísold Uggadóttur hlýtur níu tilnefningar, en myndin er tilnefnd sem kvikmynd ársins, fyrir leikstjórn og handrit. Kristín Þóra Haraldsdóttir er tilnefnd fyrir bestan leik í aðalhlutverki og Babetida Sadjo fyrir bestan leik í aukahlutverki.

Þetta kom fram þegar Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían (ÍKSA) kynnti tilnefningar ársins. Alls verða veitt verðlaun í 26 flokkum auk heiðursverðlauna á Edduhátíðinni 2019 sem fram fer í Austurbæ 22. febrúar og sýnd beint á RÚV, en útsending hefst kl. 20.55.

Í ár eru liðin 20 ár frá því Edduverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn. Alls voru 118 verk send inn í keppnina í ár, auk þess sem 214 innsendingar voru í fagverðlaun Eddunnar. Af innsendum verkum eru sjónvarpsverk alls 78 talsins, kvikmyndir eru sjö, stuttmyndir 16, heimildarmyndir 17 og 13 verk flokkast undir barna- og unglingaefni. Gjaldgeng voru sjónvarps- og kvikmyndaverk sem voru sýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar 2018 til 31. desember 2018.

Halldóra Geirharðsdóttir í Kona fer í stríð.
Halldóra Geirharðsdóttir í Kona fer í stríð.


Kvikmynd

  • Kona fer í stríð
  • Andið eðlilega
  • Lof mér að falla
Babetida Sadjo í Andið eðlilega.
Babetida Sadjo í Andið eðlilega.

Leikstjórn

  • Baldvin Z fyrir Lof mér að falla
  • Benedikt Erlingsson fyrir Kona fer í stríð
  • Ísold Uggadóttir fyrir Andið eðlilega

Handrit

  • Baldvin Z og Birgir Örn Steinarsson fyrir Lof mér að falla
  • Benedikt Erlingsson og Ólafur Egill Egilsson fyrir Kona fer í stríð
  • Ísold Uggadóttir fyrir Andið eðlilega

Leikkona í aðalhlutverki

  • Elín Sif Halldórsdóttir fyrir Lof mér að falla
  • Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Andið eðlilega
  • Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Kona fer í stríð

Leikari í aðalhlutverki

  • Eysteinn Sigurðarson fyrir Mannasiði
  • Gísli Örn Garðarsson fyrir Varg
  • Paaru Oja fyrir Undir halastjörnu

Leikkona í aukahlutverki

  • Babetida Sadjo fyrir Andið eðlilega
  • Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Lof mér að falla
  • Lára Jóhanna Jónsdóttir fyrir Lof mér að falla

Leikari í aukahlutverki

  • Kaspar Velberg fyrir Undir halastjörnu
  • Sveinn Ólafur Gunnarsson fyrir Mannasiði
  • Þorsteinn Bachmann fyrir Lof mér að falla

Kvikmyndataka

  • Bergsteinn Björgúlfsson fyrir Kona fer í stríð
  • Ita Zbroniec-Zajt og Ásgrímur Guðbjartsson fyrir Andið eðlilega
  • Jóhann Máni Jóhannsson fyrir Lof mér að falla

Klipping

  • Davíð Alexander Corno fyrir Kona fer í stríð
  • Elísabet Ronaldsdóttir og Sigvaldi J. Kárason fyrir Varg
  • Úlfur Teitur Traustason fyrir Lof mér að falla

Hljóð

  • Emmanuel De Boissieu og Frédéric Meert fyrir Andið eðlilega
  • Aymeric Devoldere, Francois De Morant, Raphael Sohier og Vincent Cosson fyrir Kona fer í stríð
  • Huldar Freyr Arnarson fyrir Varg

Tónlist

  • Atli Örvarsson fyrir Lói – þú flýgur aldrei einn
  • Davíð Þór Jónsson fyrir Kona fer í stríð
  • Gyða Valtýsdóttir fyrir Undir halastjörnu

Brellur

  • Cem Olcer, Stephane Vogel og Annabelle Zoellin fyrir Kona fer í stríð 
  • GunHil fyrir Lói – þú flýgur aldrei einn
  • Kontrast og GunHil fyrir Flateyjargátuna 

Leikmynd

  • Gunnar Pálsson & Marta Luiza Macuga fyrir Lof mér að falla
  • Heimir Sverrisson fyrir Varg
  • Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Kona fer í stríð

Gervi

  • Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Andið eðlilega
  • Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Lof mér að falla
  • Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Varg

Búningar

  • Eva Vala Guðjónsdóttir fyrir Andið eðlilega 
  • Eva Vala Guðjónsdóttir fyrir Lof mér að falla
  • Margrét Einarsdóttir fyrir Flateyjargátuna

Heimildamynd

  • UseLess
  • Svona fólk 1970-1985
  • 690 Vopnafjörður

Stuttmynd

  • Islandia
  • Nýr dagur í Eyjafirði
  • To Plant a Flag

Frétta- eða viðtalsþáttur

  • Krakkafréttir
  • Kveikur
  • Fósturbörn

Mannlífsþáttur

  • Andstæðingar Íslands
  • Hæpið
  • Veröld sem var
  • Sítengd
  • Líf kviknar

Menningarþáttur

  • Kiljan
  • Með okkar augum
  • Fullveldisöldin

Skemmtiþáttur

  • Stundin okkar
  • Heimilistónajól
  • Áramótaskaup 2018

Sjónvarpsmaður

  • Alma Ómarsdóttir fyrir Fréttaannál 2018
  • Sigríður Halldórsdóttir fyrir Kveik
  • Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fyrir Allir geta dansað
  • Sigyn Blöndal fyrir Stundina okkar og Sögur - þættir um sköpun, skrif og lestur 
  • Viktoría Hermannsdóttir fyrir Sítengd

Upptöku- eða útsendingastjórn

  • Björgvin Harðarson fyrir Pál Óskar í Höllinni
  • Björgvin Harðarson fyrir Allir geta dansað
  • Þór Freysson fyrir Jólagesti Björgvins

Barna- og unglingaefni

  • Víti í Vestmannaeyjum
  • Lói – þú flýgur aldrei einn
  • Stundin okkar

Leikið sjónvarpsefni

  • Venjulegt fólk
  • Mannasiðir
  • Steypustöðin

Sjónvarpsefni

  • Kveikur
  • Líf kviknar
  • Með okkar augum
  • Áramótaskaupið
  • Kiljan
  • Mannasiðir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert