Hættulegt slím til sölu

Neytendastofa varar fólk við hættulegu leikfangaslími sem hér er til sölu. Slímið inniheldur of mikið magn af bórati sem getur borist inn í líkamann í gegnum húð.

Neytendastofa gaf út nýja viðvörun í gær en áður hafði verið varað við öðru slími í lok janúar.

„Neytendastofu h[efur] borist tilkynning í gegnum Safety Gate kerfið um hættulegt leikfangaslím sem heitir Noise Putty. Þegar leikfangið var prófað kom í ljós að það innihélt of mikið magn af bórati. Bórat getur borist inn í líkamann við handfjötlun í gegnum húð. Þekktar eiturverkanir eru samkvæmt vefsíðu Landlæknis vegna bórats [...] m.a. húðerting með útbrotum (jafnvel mikill roði og blöðrur), skjálfti, flog, höfuðverkur, meltingartruflanir, þunglyndi og örlyndi. Í viðvörun frá Safety Gate kerfinu er þess getið að bórat getur haft hamlandi áhrif á þroska æxlunarfæra í börnum. Toi-Toys leikfangaslímið hefur m.a. verið í sölu í verslunum Hagkaups og í verslunum Iceland.

Neytendastofa beinir þeim tilmælum til neytenda að hætta strax notkun þessa slíms og skila því til söluaðila,“ segir í frétt Neytendastofu í gær.

Frétt Neytendastofu frá 31. janúar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert