Líkamsárás á Selfossi í nótt

Lögreglan á Selfossi handtók einn vegna líkamsárásar í heimahúsi í …
Lögreglan á Selfossi handtók einn vegna líkamsárásar í heimahúsi í nótt. mbl.is/​Hari

Lögreglunni á Suðurlandi var tilkynnt um líkamsárás í heimahúsi á Selfossi um klukkan fjögur í nótt. Einn var fluttur til Reykjavíkur til aðhlynningar. Þetta staðfestir Oddur Árnason yfirlögregluþjónn í samtali við mbl.is. Vísir greindi fyrst frá. 

Meintur gerandi var handtekinn og færður í fangageymslu, en var látinn laus í dag að yfirheyrslu lokinni. Þolandinn sem fluttur var til Reykjavíkur í nótt er nú kominn heim til sín, segir Oddur.

Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert