Búið er að flytja þá sem slösuðust í umferðarslysinu við Hvalfjarðargöng í morgun á Landspítalann. Samkvæmt heimildum mbl.is er ýmislegt sem bendir til þess að annar hinna slösuðu hafi ekki verið inni í bílnum er slysið varð.
Slysið varð í tveggja bíla aftanákeyrslu rétt utan við Hvalfjarðargöng. Ekki liggur fyrir hve alvarleg meiðsl hinna slösuðu eru, en ljóst er þó að meiðsl annars þeirra eru töluvert alvarlegri en hins.
Hvalfjarðargöngin eru enn lokuð samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu og ekki víst að þau verði opnuð á ný fyrr en undir hádegi.
Dælubíll frá slökkviliðinu og björgunarsveitarfólk af Kjalarnesi var að störfum á slysstað í morgun en töluvert brak er úr ökutækjunum og einnig hefur olía lekið úr þeim. Von er á bíl frá Hreinsitækni og þá ætlar rannsóknardeild lögreglunnar að skoða vettvanginn áður en bílarnir verða fjarlægðir.