Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karli á sextugsaldri sem er grunaður um ítrekaðan þjófnað á varningi úr fríhöfn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Þegar hann var handtekinn nú síðast í flugstöðinni fundust í fórum hans sjö sígarettukarton, áfengi og ilmvötn, samtals að verðmæti um 125 þúsund krónur.
Í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness kemur fram að þegar lögregla hafi rætt við manninn hafi hann lítið viljað tjá sig og verið hissa á afskiptum lögreglu. Maðurinn er einnig grunaður um að standa að stórfelldum þjófnaði í fríhöfninni í samstarfi við þrjá aðra. Til rannsóknar eru nokkur mál þar sem manninum er gefinn að sök þjófnaður en hann er einnig grunaður um stórfellda líkamsárás en það mál er á ákærustigi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 4. mars.