Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi stjórnendur Kaupþings banka, voru í dag sakfelldir fyrir fjárdrátt í Landsrétti í Marple-málinu svokallaða, líkt og gert hafði verið í dómi héraðsdóms. Hins vegar var refsing yfir þeim í málinu felld niður, en Magnús hafði fengið 18 mánaða dóm í héraði og Hreiðar Már 12 mánuði.
Fjárfestirinn Skúli Þorvaldsson var hins vegar sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins, en hann hafði verið dæmdur í sex mánaða fangelsi í héraðsdómi. Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrverandi fjármálastjóri bankans, var sýknuð, líkt og í héraðsdómi.
Með fyrri dómum hefur Hreiðar hlotið sex ára fangelsi fyrir fjármálabrot, en það er refsihámark slíkra brota. Til viðbótar var honum dæmdur hegningarauki í dómi héraðsdóms í Marple-málinu. Magnús hafði áður hlotið fjögurra ára og sex mánaða dóm og bættist 18 mánaða dómur héraðsdóms þar ofan á.
Landsréttur telur í dómi sínum núna að þótt brot hans varði háa fjárhæð sé málið fjarri því eins yfirgripsmikið og þau brot sem hann hafi þegar verið fundinn sekur um og sætt refsingu fyrir. Auk þess liggi ekki fyrir að brotið hafi verið framið í þágu hans til viðbótar við mikinn drátt á málinu, en Hæstiréttur ógilti fyrri niðurstöðu héraðsdóms vegna þess að Ásgeir Brynjar Torfason, sérfróður meðdómsmaður í héraðsdómi, var úrskurðaður vanhæfur vegna ummæla hans og athafna á samfélagsmiðlum þar sem hann lýsti eindreginni afstöðu sinni um málefni Kaupþings og stjórnenda bankans.
Landsréttur vísar í sömu rök varðandi niðurfellingu á refsingu Magnúsar, en hann var fundinn sekur um hlutdeild í brotum Hreiðars Más.
Landsréttur viðurkennir í dóminum skaðabótaskyldu bæði Magnúsar og Hreiðars Más gagnvart Kaupþingi ehf. vegna tjóns sem gat hlotist af háttsemi þeirra. Skaðabótaskyldu gegn Skúla og Guðnýju er hins vegar vísað frá dómi þar sem þau eru sýknuð.
Í ákæru sérstaks saksóknara voru Hreiðar Már og Guðný Arna sögð hafa skipulagt og framkvæmt fjárdrátt og umboðssvik með því að hafa fært um 8 milljarða úr sjóðum Kaupþings til félagsins Marple Holding S.A. SPF. Félagið er skráð í Lúxemborg, en deilt var um hvort það væri í eigu Skúla. Tók Landsréttur ekki afstöðu til þess í dómi sínum. Var Skúli einn af stærstu viðskiptavinum bankans fyrir fall bankans og í stóra markaðsmisnotkunarmálinu var meðal annars ákært fyrir lánveitingar til félags í hans eigu. Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, var í málinu ákærður fyrir hlutdeild í fjárdrætti og umboðssvikum, meðan Skúli var ákærður fyrir hylmingu. Hann var hins vegar fundinn sekur um brot á lögum um peningaþvætti með refsiverðu athafnarleysi en ekki hylmingu í dómi héraðsdóms.
Aðeins var sakfellt fyrir einn hluta ákærunnar, en hann sneri að fjárdrætti upp á 3 milljarða sem átti sér stað í desember 2007 og voru aðeins Hreiðar og Magnús ákærðir í þeim lið. Í öðrum liðum ákærunnar var sýknað.