Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, hefur kært borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík sem fóru fram 26. maí 2018.
Áður hafði Vigdís lýst því yfir að hún hygðist senda beiðni til dómsmálaráðuneytisins þar sem óskað yrði eftir því að framkvæmd sveitarstjórnarkosninga 2018 í Reykjavík yrði tekin til skoðunar og lögmæti þeirra metið.
Gerði hún það í kjölfar fundar borgarráðs í morgun þar sem farið var yfir úrskurð Persónuverndar um notkun Reykjavíkurborgar og rannsakenda við Háskóla Íslands á persónuupplýsingum frá Þjóðskrá Íslands.
Í umræddum úrskurði er sagt að kjósendur hafi fengið gildishlaðin skilaboð frá borginni samhliða hvatningu til þess að kjósa, í einu tilfelli hafi verið um efnislega röng skilaboð að ræða.
Vigdís greinir frá kærunni á Facebook þar sem hún birtir bréf sem hún sendi sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Í bréfinu kemur meðal annars fram að samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórnar sé kærufrestur sjö dagar að afliðnum kosningum.
„Eðli máls samkvæmt er sá frestur löngu liðinn, en nú hefur Persónuvernd gert alvarlegar athugasemdir við framkvæmd og aðdraganda kosninganna sbr. úrskurður sem birtur var á Reykjavíkurborg hinn 7. febrúar s.a. og lítur kærandi svo á að nýr kærufrestur hafi byrjað að líða þann dag,“ segir í bréfi Vigdísar.
„Í XIV. kafla sveitarstjórnarlaga segir í 93 gr. um kosningakærur: „Sá sem vill kæra sveitarstjórnarkosningarnar skal afhenda kæru sína hlutaðeigandi sýslumanni innan sjö daga frá því að lýst var úrslitum kosninga. Í ljósi framangreinds afhendi ég Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu kæru til efnismeðferðar og úrskurðar,“ segir enn fremur.