Sigmundur Ernir Rúnarsson, fréttastjóri Hringbrautar, var í dag dæmdur til að greiða tveimur karlmönnum 250 þúsund krónur hvorum í miskabætur vegna fréttar sem birtist á vef Hringbrautar í tengslum við Hlíðamálið svokallaða.
Frá þessu er greint á vef RÚV. Auk þess dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur sex ummæli Tryggva Viðarssonar, í tengslum við sama mál, dauð og ómerk.
Ummæli sem birtust á vef Hringbrautar voru dæmd dauð og ómerk. Þar kom meðal annars fram að meðal nemenda Háskólans í Reykjavík gengi sú saga að mennirnir hefðu haft fleiri fólskuverk í hyggju og að tekist hefði að koma í veg fyrir þriðju nauðgunina.
Héraðsdómur sagði Hringbraut hafa brugðist skyldum sínum með skrifunum og afvegaleitt umræðu um mennina tvo.
Mikið uppþot varð í samfélaginu í kring um málið og voru karlmennirnir tveir sagðir hafa sérútbúið umrædda íbúð til brota sinna og að fórnarlömbin þeirra hefðu verið fleiri en eitt.