Þrennt alvarlega slasað eftir árekstur

Frá Suðurlandsvegi austan við Hjörleifshöfða á fimmtudagskvöld.
Frá Suðurlandsvegi austan við Hjörleifshöfða á fimmtudagskvöld. mbl.is/Jónas Erlendsson

Þrír liggja alvarlega slasaðir á Landspítalanum eftir árekstur tveggja bíla á Suðurlandsvegi austan við Hjörleifshöfða á fimmtudagskvöld, breskt par og einstaklingur frá Taívan.

Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, staðfestir þetta í samtali við RÚV. Ekki voru veittar frekari upplýsingar um líðan fólksins en málið er til rannsóknar.

Tveir bíl­ar sem komu úr gagn­stæðri átt rák­ust sam­an og sá þriðji keyrði út af til að koma í veg fyr­ir að lenda aft­an á öðrum bíln­um. Hinir slösuðu voru í bíl­un­um sem rák­ust sam­an.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka