Samkeppniseftirlitið hefur enn ekki heimilað kaup Kviku á Gamma og bankinn er því ekki eigandi félagsins. Þetta segir Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, í svari við fyrirspurn mbl.is vegna þeirrar yfirlýsingar VR að félagið taki allt fé sitt úr eignastýringu hjá Kviku verði hækkun leigu hjá Almenna leigufélaginu ekki afturkölluð.
Sagði VR í yfirlýsingu fyrr í dag að það sætti sig ekki við að Almenna leigufélagið hafi hækkað leigu um tugþúsundir króna í einhverjum tilfellum og gefið leigjendum fjóra daga til að samþykkja hækkunina.
„Við vonumst auðvitað eftir því að SKE [Samkeppniseftirlitið] samþykki kaupin, en það geta liðið vikur eða mánuðir þar til það gerist. Þar til kaupin ganga í gegn höfum við ekkert með stjórn Gamma að gera og er óheimilt að reyna að hafa einhver áhrif á rekstur félagsins og sjóðastýringu þess,“ segir Ármann.
Fyrir utan samþykki Samkeppniseftirlitsins, séu engir aðrir fyrirvarar settir við kaup Kviku á Gamma og því liggi fyrir að þau muni ganga í gegn fáist samþykkt Samkeppniseftirlitsins.