Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, segir á Facebook-síðu sinni nú í kvöld að það hafi verið dagur vonbrigða þegar ríkisstjórnin kynnti stéttarfélögunum skattatillögur sínar í dag.
„1. Skattalækkun upp allan stigann,“ segir Drífa í færslu sinni og kveður engan hafa verið að kalla eftir skattalækkun á hæstu tekjuhópana.
Annað atriðið sé sennileg frysting persónuafsláttar í nokkur ár, enda feli það í sér raunlækkun persónuafsláttar.
„3. Ekkert meira inn í barnabóta- og húsnæðiskerfin en komið er,“ segir Drífa og bendir á að fjármagn í barnabætur hafi ekki enn náð raungildi ársins 2010.
Í fjórða lagi feli tillögurnar engan hátekjuskatt í sér, né heldur hækkun á auðlindagjöldum og fjármagnstekjuskatti og því sé tekjuöflunin engin.
Að lokum sé skattalækkunin á þá hópa sem enn nái ekki endum saman ekki meiri en svo að hún dugi „varla fyrir einni ferð í Bónus og sú lækkun á að koma einhvern tímann á næstu þremur árum,“ segir Drífa.
Niðurstaðan sé sú að þetta verði ekki til að liðka fyrir kjarasamningum.