Leigufélagið Heimavellir hyggst hefja sölu nýrra íbúða á Hlíðarenda í mars. Íbúðirnar verða á svonefndum E-reit en alls verða 178 íbúðir á reitnum fullbyggðum.
Heimavellir eiga 164 íbúðanna en Frostaskjól ehf. 14 íbúðir, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimavalla, segir um 75 íbúðir af 164 í eigu félagsins á E-reit koma til afhendingar í sumar.