Yfir 2.000 manns hafa skrifað undir áskorun Landverndar til umhverfis- og auðlindaráðherra og forstjóra Umhverfisstofnunar um að hraða vinnu við friðlýsingu á áhrifasvæði Hvalárvirkjunar, Drangajökulssvæðinu, þannig að hægt verði að leggja friðlýsinguna fyrir Alþingi á haustþingi.
Landvernd hóf að safna undirskriftum þessu til stuðnings í gær, en samtökin segja að virkjunin muni valda óafturkræfum spjöllum á einstöku landsvæði.
„Vegna virkjunarinnar þarf að reisa fimm stíflur, mynda fjögur lón, grafa skurði og göng, reisa stöðvarhús og leggja vegi. Stíflugarðarnir verða á hæð við tíu og tólf hæða blokkir á heiði þar sem náttúran ræður nú ein ríkjum. Gríðarstórt uppistöðulón mun drekkja fjölmörgum stöðuvötnum og þurrka upp tugi fossa, þar á meðal Drynjanda sem er eitt stórbrotnasta vatnsfall Íslands,“ sagði í fréttatilkynningu frá Landvernd.