Loftslagsverkfall stúdenta á morgun

Skólaverkföll hinnar sænsku Gretu Thunberg hafa vakið athygli.
Skólaverkföll hinnar sænsku Gretu Thunberg hafa vakið athygli. AFP

Efnt er til verkfalls fyrir loftslagið á Austurvelli á morgun, 22. febrúar – og alla næstu föstudaga – á milli klukkan 12 og 13. Landssamtök íslenskra stúdenta boða til loftslagsverkfallsins.

Verkfallið er innblásið af hinni sænsku Gretu Thunberg, en skólaverkfall hennar hefur vakið mikla athygli. Nú þegar hafa tugþúsundir ungmenna farið að hennar fordæmi og flykkst út á götur til að mótmæla aðgerðaleysi stjórnvalda í baráttunni við loftslagsbreytingar, meðal annars í Belgíu, Bretlandi, Bandaríkjunum, Ástralíu, Þýskalandi og Svíþjóð.

Við krefjumst þess að Ísland taki af skarið, hlusti á vísindamenn, lýsi yfir neyðarástandi og láti hið minnsta 2,5% af þjóðarframleiðslu renna beint til loftslagsaðgerða. Þar verður atvinnulífið einnig að axla ábyrgð og til þess verður ákveðin viðhorfsbreyting að eiga sér stað,“ segir í yfirlýsingu stúdentanna.

Ljósmynd/Facebook

Stúdentar styðja aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum til ársins 2030 en þar er meðal annars gert ráð fyrir kolefnishlutleysi fyrir árið 2040. 

 „Við viljum styðja við bakið á þeim aðgerðum, en betur má ef duga skal. Núverandi aðgerðaáætlun er ekki í samræmi við markmið um að halda hlýnun innan 1,5 gráða á heimsvísu og við krefjumst aðgerða sem eru líklegar til að skila þeim árangri.“

Landssamtök stúdenta segja ljóst að stórauka þurfi fjárframlög í loftslagsaðgerða. „Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (IPCC) reiknast til að verja þurfi 2,5% af heimsframleiðslu til loftslagsmála á ári til ársins 2035 til að halda hlýnun innan við 1,5 gráður. Núverandi áætlun er upp á 0,05% af þjóðarframleiðslu á ári næstu fimm árin,“ segir í yfirlýsingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert