Nafn mannsins sem er leitað

Maðurinn sem leitað hefur verið að í og við Ölfusá …
Maðurinn sem leitað hefur verið að í og við Ölfusá frá því í gærkvöldi heitir Páll Mar Guðjónsson. Samsett mynd/mbl.is

Maðurinn sem leitað hefur verið að í og við Ölfusá frá því í gærkvöldi heitir Páll Mar Guðjónsson, fæddur 28. júlí 1968, til heimilis að Stekkholti 11 á Selfossi. Hann er ókvæntur og barnlaus.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Þar kemur fram að aðstandendur hans vilja þakka viðbragðsaðilum umfangsmikið og óeigingjarnt starf við leitina.

Veður til leitar hefur farið batnandi í dag og verður leitað fram í myrkur í kvöld. Aftur verður hafist handa við leit í fyrramálið ef hún skilar ekki árangri í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert