Flestir hópar byrjaðir að leita

Frá leitinni í Ölfusá í gær.
Frá leitinni í Ölfusá í gær. mbl.is/Hallur Már Hallsson

Tugir björgunarsveitarmanna úr Árnessýslu og frá höfuðborgarsvæðinu munu í dag halda áfram leitinni að Páli Mar Guðjónssyni sem er talinn hafa ekið bifreið sinni út í Ölfusá.

Að sögn Davíðs Más Bjarnasonar, upplýsingafulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar, eru flestir hóparnir komnir út að leita.

Hann segir leitarskilyrðin vera mun betri í dag en í gær en bendir á að lögreglan muni taka ákvörðun um framhald leitarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert