Leit hefur formlega verið hætt í dag að manninum sem talið er að hafi farið í Ölfusá mánudaginn 25. febrúar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Þar segir enn fremur að eftirlit verði með ánni næstu daga en fyrirhugað er að setja fullan þunga í leitina aftur um helgina.
Tugir björgunarsveitarmanna úr Árnessýslu og frá höfuðborgarsvæðinu leituðu í dag en talið er að Páll Mar Guðjónsson hafi ekið bifreið sinni út í Ölfusá.